Aukið eftirlit Skattsins
Undanfarna mánuði hefur Skatturinn aukið eftirlit sitt með fyrirbyggjandi aðgerðum gegn peningaþvætti verulega. Tilkynningarskyldir aðilar, þar á meðal fasteignasalar, bílasalar og lögmanns- og endurskoðunarstofur, hafa sætt verulegum sektum fyrir brot gegn regluverkinu, eða allt að 23.250.000 kr.
Yfirlit yfir nýlegar sektir ríkisskattstjóra
Sjö sektir hafa fallið á síðastliðnum 12 mánuðum. Fjárhæð sektanna er afar misjöfn, allt frá 1.250.000 kr. til 23.250.000 kr. Sektirnir varða almennt séð, a.m.k. að svo stöddu, eðlislík brot, þ.e., vankantar í tengslum við framkvæmd áreiðanleikannanna. Algengustu brotin má sjá hér til hliðar.
1. Ófullnægjandi framkvæmd áreiðanleikannana
2. Viðskiptavinir ekki látnir sanna á sér deili, svo sem með framvísun persónuskilríkja
3. Upplýsinga ýmist ekki aflað, eða ekki aflað með fullnægjandi hætti, um raunverulega eigandur
4. Auknar áreiðanleikakannanir ekki framkvæmdar eða framkvæmdar með ófullnægjandi hætti
5. Látið hjá líða að athuga hvort að viðskiptavinir tilheyri áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla (PEP)
6. Látið hjá líða að athuga hvort að viðskiptavinir séu á válistum
7. Gögn og upplýsingar vegna áreiðanleikakannana ekki varðveitt með fullnægjandi hætti
8. Skort á þjálfun starfsmanna
9. Vanrækslu á innleiðingu fullnægjandi reglna, stefna og verkferla
Þjónustan okkar
Hjá iDenti sérhæfum við okkur í að hjálpa litlum og meðalstórum fyrirtækjum að uppfylla reglur gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þjónusta okkar er sniðin að því að vera hagkvæm, áreiðanleg og snörp, sem tryggir hlítni þíns fyrirtækis á einfaldan hátt.
Við erum stolt af okkar samstarfi við iDenti. Það hefur einkennst af mikilli fagmennsku, útsjónarsemi og vilja til að ná raunverulegum og mælanlegum árangri er varðar varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Lagaumhverfið heimur kallar á djúpa þekkingu og lausnir sem henta félaginu. Á því sviði hefur iDenti sannað sig og reynst traustur ráðgjafi.









