Fræðsla
Fræðsla
starfsmanna
Samkvæmt lögum ber tilkynningarskyldum aðilum að tryggja starfsmönnum sínum sérstaka þjálfun í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og þekkingu á ákvæðum laga nr. 140/2018, reglugerðum og reglum sem settar eru á grundvelli grundvelli þeirra.
Þjálfun og fræðsla starfsmanna í vörnum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er grundvallaratriði skilvirks innra eftirlits hjá fyrirtækjum. Sé þekking ekki til staðar um málaflokkinn, sem og þær hættur sem kunna að vera til staðar, leiðir slíkt til þess að erfitt er að bregðast við atvikum sem kunna að gefa tilefni til grunsemda og eftir atvikum tilkynninga til yfirvalda vegna gruns um peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka.
Útfærsla
fræðsluáætlunar
Við hjálpum þér að útfæra fræðsluáætlun sem tekur mið af stærð og eðli þíns rekstrar sem tryggir að fullnægjandi þjálfun fari fram með hliðsjón af þeim kröfum sem lög og reglur kveða á um.
Lög, reglurgerðir
og tilmæli
Við sjáum til þess að starfsfólk þitt kunni skil á helstu lögum, reglugerðum og tilmælum sem gilda í málaflokknum.
Fyrirlestrar og námskeiðahald
Við sjáum um að þjálfa og fræða þitt starfsfólk svo að það öðlist þekkingu á málaflokknum og þeim skyldum sem til staðar eru til að tryggja að starfsemi þín uppfylli þær skyldur sem á henni hvíla.
Grundvallarskyldur
fyrirtækja
Við sjáum til þess að þitt starfsfólk kunni skil á þeim helstu skyldum sem á því hvíla, svo sem varðandi framkvæmd áhættumats, áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum og tilkynningar til skrifstofu fjármálagreininga lögreglu.
Þjálfun
starfsmanna
Er kominn tími á fræðslu og þjálfun þinna starfsmanna?
Hafðu samand og við aðlögum nálgun og verð að þínum þörfum.