Áhættumat
Hvað er
áhættumat?
Frá og með 1. janúar 2019 hefur fjölmörgum fyrirtækjum verið skylt að framkvæma áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka á rekstri sínum og viðskiptum. Umrædd fyrirtæki, þ.e. tilkynningarskyldir aðilar, eru meðal annars fasteignasalar, lögmenn, endurskoðendur og bifreiðasalar.
Áhættumat felur í sér að bera kennsl á og meta hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka í starfsemi tilkynningarskylds aðila. Áhættumatinu er ætlað að leiða í ljós helstu veikleika og ógnir sem beinast að viðkomandi tilkynningarskyldum aðila og skal í áhættumatinu tilgreina aðferðir og leiðir til að stýra og draga úr greindri hættu á að starfsemin sé misnotuð til peningaþvættis og fjármögnunar hryðjuverka.
Áhættumatið er svo nýtt til að útbúa stefnu, stýringar og verkferla til að draga úr og stýra greindri áhættu og viðhafa fullnægjandi eftirlit.
Okkar
aðstoð
Við vinnum með okkar viðskiptamönnum að því að útfæra þá aðferðafræði sem skapar grundvöll áhættumats sem hentar fyrirtækinu. Í því felst að greina hvar hætta á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka liggur í rekstrinum sem og aðferðir sem tækar eru til að draga úr slíkri hættu.
Upplýsingar sem fást við slíka greiningu eru svo nýttar til að framkvæma og útfæra skriflegt áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka sem lýsir með nákvæmum hætti innviðum, ferlum og skipulagi rekstursins er viðkemur aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Útfærsla
aðferðafræði
Við hjálpum þér að útfæra og skjalfesta þá aðferðafræði sem leggur grunninn að áhættumati þíns reksturs á greinargóðan og skiljanlegan máta.
Áhættuflokkun
viðskiptamanna
Við hjálpum þér að áhættuflokka viðskiptamenn þína, meðal annars með tilliti til þátta á borð við dreifileiða og hvaða ríki eða ríkjasvæði tengjast viðskiptasambandinu, og sjáum til þess að aðferðafræðin að baki áhættuflokkuninni, sem og áhættuflokknin sjálf, sé skýrlega skjalfest í áhættumatinu.
Greining
áhættuþátta
Við aðstoðum þig við að koma auga á hvaða áhættuþættir eru fyrir hendi í rekstri þínum, meðal annars með tilliti til þátta er varða viðskiptamenn, viðskiptalönd, vörur og dreifileiðir.
Sérsniðið áhættumat
fyrir þinn rekstur
Að lokinni gagnaöflun, greiningu og mati á áhættuþáttum, aðstoðum við þig við að útfæra fullútbúið áhættumat sérsniðið að þínum rekstri.
Sérsniðið
áhættumat
Vantar þig fullútbúið áhættumat fyrir þitt fyrirtæki?
Hafðu samand og við aðlögum nálgun og verð
að þínum þörfum.