Stafrænar

áreiðanleikakannanir

Stafrænar

áreiðanleikakannanir

Stafrænar

áreiðanleika-kannanir

Hefðbundin

áreiðanleika-könnun

Flestir tilkynningarskyldir aðilar í dag, á borð við fasteignasala og lögmenn, framkvæma sínar áreiðanleikakakannanir á viðskiptamönnum á útprentuðum eyðublöðum, þar sem skilríkja er óskað, og aflaðar upplýsingar í kjölfarið almennt skannaðar. Framangreint verklag er almennt tímafrekt, óþarflega flókið og uppfyllir þess þá heldur ekki þær skyldur sem á tilkynningarskyldum aðilum hvíla.


Stafrænar áreiðanleikakannanir iDenti einfaldar verklag tilkynningarskyldra aðila, dregur úr flækujstigi og samtímis aðstoðar þig við að uppfylla kröfur peningaþvættislöggjöfarinnar. Lausnin er notendavæn í notkun, hvoru tveggja fyrir hinn tilkynningarskylda aðila og notandann.

iDenti

áreiðanleika-

könnun

Segðu skilið við óþarfa tímaeyðslu og pappírsvinnu sem allajafna leiðir til aukins kostnaðar og hættu á óvandvirkum vinnubrögðum. Með stafrænum áreiðanleikakönnunum iDenti öðlastu tól sem hjálpar þínu fyrirtæki að fullnægja viðeigandi lagakröfum peningaþvættislöggjafarinnar og samtímis einfalda verklag vegna áreiðanleikakannana til muna. 


Ferlið er einfalt – viðskiptamaðurinn annast eigin áreiðanleikakönnun. Þú einfaldlega sendir þínum viðskiptamanni hlekk sem hann skráir sig inn á, hann svarar sérsniðnum spurningum, og í kjölfarið færð þú niðurstöðurnar afhentar. 

Stafrænt ferli

Segðu skilið við pappír og skönnun skilríkja. iDenti áreiðanleikakannanir eru alfarið stafrænar sem einfaldar hvoru tveggja áreiðanleikakönnunina sjálfa sem og alla skjölun. 


Áreiðanleikakannanir fara alfarið fram á netinu og færð þú niðurstöður áreiðanleikannana sendar til þín með rafrænum hætti. 

PEP

& válistar

Sjálfvirk tenging við gagnagrunna sem hafa að geyma upplýsingar um hvort þinn viðskiptamaður kunni að tilheyra áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla (PEP) eða hvort hann sé á válista.

Rafræn skilríki

Það að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum á netinu jafngildir því að framvísa persónuskilríkjum. Rafræn skilríki eru ekki eingöngu þægilegri en framvísun hefðbundinna skilríkja, heldur jafnframt öruggari.


Viðskiptamenn þínir skrá sig inn með sínum rafrænu skilríkjum og getur þú því sagt skilið við umstangið sem fólgið er í öfllun persónuskilríkja.

Sérsniðin lausn fyrir

þinn rekstur

Við gætum þess að iDenti áreiðanleikakönnunin sé sérsniðin þínum rekstri svo að hún henti þér og þeim hættum sem kunna að steðja að þínu fyrirtæki.

Sérsniðnar

áreiðanleika-kannanir

Vantar þig sérsniðinn pakka sem hentar þínu fyrirtæki?

Hafðu samand og við aðlögum nálgun

og verð að  þínum þörfum.

Hafðu samband

Sérsniðnar

áreiðanleikakannanir

Vantar þig sérsniðinn pakka sem hentar þínu fyrirtæki?


Hafðu samand og við aðlögum nálgun

og verð að  þínum þörfum.

Hafðu samband