Verðskrá
Hér að neðan má finna upplýsingar um verð fyrir þjónustu Identi.
Athugaðu að verð eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur og án virðisaukaskatts.
Áreiðanleikakannanir
Stafrænar áreiðanleikakannanir Identi einfaldar verklag tilkynningarskyldra aðila, dregur úr flækujstigi og samtímis aðstoðar þig við að uppfylla kröfur peningaþvættislöggjöfarinnar. Lausnin er notendavæn í notkun, hvoru tveggja fyrir hinn tilkynningarskylda aðila og notandann.
Eitthvað annað?
Vantar þig sérsniðinn pakka sem hentar þínu fyrirtæki?
Hafðu samand og við aðlögum nálgun og verð að þínum þörfum.
Áhættumat vegna
peningaþvættis
Við vinnum með okkar viðskiptamönnum að því að útfæra þá aðferðafræði sem skapar grundvöll áhættumats sem hentar fyrirtækinu. Í því felst að greina hvar hætta á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka liggur í rekstrinum sem og aðferðir sem tækar eru til að draga úr slíkri hættu.
Upplýsingar sem fást við slíka greiningu eru svo nýttar til að framkvæma og útfæra skriflegt áhættumat vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka sem lýsir með nákvæmum hætti innviðum, ferlum og skipulagi rekstursins er viðkemur aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Frá 75.000 kr.
Peningaþvættisfræðsla
Identi
Lögum samkvæmt ber tilkynningarskyldum aðilum að tryggja starfsmönnum sínum sérstaka þjálfun í aðgerðum gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og þekkingu á ákvæðum laga nr. 140/2018, reglugerðum og reglum sem settar eru á grundvelli grundvelli þeirra.
Við sjáum um að þjálfa og fræða þitt starfsfólk svo að það öðlist þekkingu á málaflokknum og þeim skyldum sem til staðar eru til að tryggja að starfsemi þín uppfylli þær skyldur sem á henni hvíla.

