Við erum iDenti


Með tilkomu nýrra laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka voru skyldur, sem áður fyrr hvíldu einkum á fjármálafyrirtækjum, látnar ná til aðila sem hafa ekki þurft að láta málaflokkinn sig varða, svo sem fasteignasala, bifreiðasala, bókarara og endurskoðenda. Um er að ræða talsvert íþyngjandi skyldur sem í mörgum tilvikum kann að reynast erfitt að uppfylla á fullnægjandi hátt. Svo þarf þó ekki endilega að vera, ef umræddir aðilar njóta skilvirkrar ráðgjafar Identi. 


Identi er framsækið fyrirtæki sem byggir á reynslu tveggja lögfræðinga á regluverki Íslands um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Fyrirtækið var sett á laggirnar í þeim tilgangi að þjónusta lítil og meðalstór fyrirtæki í tengslum við þær lagaskyldur sem á þeim hvíla í tengslum við varnir þeirra gegn peningaþvætti.


Identi býður þessum aðilum heildstæða þjónustu í málaflokknum, á hagkvæman, áreiðanlegan og skjótan máta, svo að hlítni þeirra sé tryggð og þau geta einbeitt sér að því sem þau gera best, skapa verðmæti. 


Markmið okkar er að vera traustur bakhjarl þinn þegar kemur að baráttunni gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.


Starfsmenn

iDenti

Þórir Helgi

Sigvaldason

Framkvæmdastjóri & stofnandi

Þórir fer með framkvæmdastjórn Identi. Þórir er lögmaður með víðtæka reynslu af ráðgjöf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og hefur meðal annars komið að ráðgjöf til félagasamtaka, fjártæknifyrirtækja og annarra fyrirtækja í málaflokknum. Þórir hefur ritað fræðigreinar um efnið og jafnframt haldið fyrirlestra og námskeið fyrir starfsmenn tilkynningarskyldra aðila.

Kristinn

Svansson

Stjórnarmaður

Kristinn Svansson er starfandi lögfræðingur og hefur í störfum sínum veitt ráðgjöf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, hvoru tveggja sem ábyrgðarmaður peningaþvættis fjármálafyrirtækis sem og til fjölmargra fyrirtækja og félagasamtaka. Þá hefur Kristinn jafnframt veitt fjölmörgum fyrirtækjum ráðgjöf í málaflokknum.