Viðskiptaskilmálar

Við styrkjum varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Um þá þjónustu sem við veitum gilda skilmálar sem nánar verður gerð grein fyrir hér í framhaldi og varða notkun þjónustunnar, réttindi og skyldur þínar sem og okkar. Við hvetjum þig eindregið til að að lesa skilmálana vandlega yfir og ef einhverjar spurningar vakna munum við góðfúslega svara þeim.



Með notkun okkar þjónustu sem felur í sér hugbúnað, aðrar vörur og þjónustu, og gerir notendum meðal annars kleift að framkvæma áreiðanleikakannanir á viðskiptamönnum með rafrænum hætti  („Þjónusta“), samþykkir þú skilmála okkar og í því felst bindandi samningur („Þjónustusamningur“) á milli Áreiðanleika ehf., kt. 4211210360, með lögheimili að Sundagörðum 2 104 Reykjavík („Identi“, „við“ eða „okkur“) og þess einstaklings eða lögaðila sem nýtir þjónustuna („þú“, „þinn“ eða „notandi“), sameiginlega nefndir „aðilar“.

 

1.           Gildistími og uppsögn

1.1        Þjónustusamningur þessi er ótímabundinn.

1.2        Hvorum aðila um sig er heimilt að segja upp Þjónustusamningi með skriflegri tilkynningu þess efnis á skráð netfang aðila. Uppsögn skal taka gildi við loka dag viðkomandi almanaksmánaðar.


2.           Verð & greiðsla

2.1        Verð fyrir Þjónustuna fer eftir gildandi verðskrá á hverjum tíma nema um annað sé sérstaklega samið.

2.2        Við áskiljum okkur einhliða rétt til að endurskoða og breyta gildandi verðskrá við og við, sem og umsömdum verðum á öðrum miðlum, að því tilskildu að slíkum kjörum hefur ekki verið markaður sérstakur gildistími, í samræmi við ákvæði 7.2.

2.2        Kynningarverð sem við kunnum að bjóða þér skulu gild í þrjá (3) mánuði frá og með þeim degi sem slík kjör eru boðin nema um annað sé samið.

2.3        Við sendum reikning vegna Þjónustunnar mánaðarlega í heimabanka þinn. Gjalddagi reiknings er 1. hvers mánaðar og eindagi reiknings fjórtan dögum síðar. Sé reikningur greiddur eftir eindaga reiknast dráttarvextir í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.


3.           Þínar skyldur

3.1        Þér er með öllu óheimilt að nota, hvetja til, auglýsa, hafa milligöngu um eða leiðbeina öðrum að nota Þjónustuna í hvers kyns ólögmætum, skaðlegum tilgangi eða tilgangi sem brýtur gegn almennu velsæmi.

3.2        Ásamt því er fram kemur í ákvæði 3.1. gr. eru eftirfarandi aðgerðir, án takmörkunar, með öllu óheimilar:

a)           Að trufla notkun annarra notenda sem nýta sér Þjónustuna, gera eitthvað sem veldur óeðlilega miklu álagi á   Þjónustuna og tölvukerfið eða truflar eðlilegt aðgengi annarra notenda að Þjónustunni.

b)           Að reyna á nokkurn hátt að sækja, birta eða greina á annan hátt undirliggjandi forritskóða út frá þeim hugbúnaði sem er notaður er í kerfum Identi. Ef þú færð af öðrum ástæðum aðgang að undirliggjandi forritunarkóða, s.s. vegna bilunar, þá ber honum að tilkynna slíkt án tafar á netfangið identi@identi.is.

c)           Að trufla, skerða eða á nokkurn hátt nýta Þjónustuna með þeim hætti að slík notkun hafi skaðleg áhrif á Identi, viðskiptahagsmuni Identi, umhverfi, búnað og kerfi Identi eða truflar kerfisrekstur Identi og eftir atvikum viðskiptavina félagsins.

d)           Að framselja Þjónustuna með nokkrum hætti, afrita Þjónustuna, leyfa fleiri notendum afnot af Þjónustunni, breyta eða fela öðrum að breyta Þjónustuna, brjóta niður Þjónustuna, fjarlægja forrit úr Þjónustunni eða taka hann í sundur nema lög heimili annað eða við veitum þér skriflegt samþykki fyrir slíku.

3.3        Þú berð ábyrgð á því að notkun þín á Þjónustunni brjóti ekki gegn lögum eða réttindum annarra.


4.           Skuldbindingar & ábyrgð

4.1        Við getum ekki ábyrgst að þær upplýsingar sem aflað er með sjálfvirkum hætti frá þriðja aðila eða viðskiptamanni þínum við veitingu Þjónustunnar séu tæmandi né að þær séu réttar.

4.2        Þér er ljóst að notkun Þjónustunnar er eingöngu liður í því að fullnægja þeim lagakröfum sem á þér kunna að hvíla, svo sem á grundvelli laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþætti og fjármögnun hryðjuverka, og er ekki ætlað að fullnægja með fullkomnum eða tæmandi hætti slíkar lagakröfur. Þá er þér ennfremur ljóst að Þjónustan leggur ekki sjálfstætt mat á áhættu sem kann að leiða af viðskiptamanni þínum með hliðsjón af framangreindum lögum og er því brýnt að þú metir þær upplýsingar sem þér eru veittar með sjálfstæðum hætti.

4.3        Við berum ekki ábyrgð á óþægindum eða tjóni sem orsakast beint eða óbeint vegna bilunar í tölvubúnaði og/eða hugbúnaði okkar eða notanda eða af öðrum orsökum, sem kunna að valda því að upplýsingar eru ekki réttar eða að þú náir ekki að tengjast þjónustunni. Við berum ekki ábyrgð á óþægindum eða tjóni sem kann að orsakast beint eða óbeint vegna galla eða bilunar í endabúnaði, tengingu við veraldarvefinn, þeim hugbúnaði sem nauðsynlegur er til tengingar við þjónustu okkar, vafra eða stýrikerfi þíns eða tölvukerfi Identi, eða af öðrum þeim orsökum sem kunna að valda því að aðgerðir í gegnum þjónustu okkar geta ekki farið fram eða verða með öðrum hætti en til var ætlast s.s. vegna tæknibilana, villna í gögnum eða truflana í rekstri tölvukerfa.

4.4        Við berum ekki ábyrgð á tjóni sem þú eða þriðji aðili kann að verða fyrir vegna notkunar á þeirri Þjónustu sem Þjónustusamningur þessi nær til, hvort sem um er að ræða beint eða óbeint tjón, nema tjónið verði rakið til saknæmrar háttsemi okkar eða annars aðila sem við berum ábyrgð á.


5.           Hugverkaréttindi

5.1        Þjónusta okkar, þar með talið útlitshönnun (t.d. texti, grafík, myndir, vörumerki), ljósmyndir, hugbúnaður, ritstýrt efni, tilkynningar og annað efni er varið samkvæmt höfundarréttar- og vörumerkjalögum á Íslandi og annars staðar. Þjónusta okkar er eign Identi eða notað samkvæmt leyfi frá hugbúnaðar-, gagna- eða öðrum efnisveitum sem við eigum í viðskiptasambandi við. Við veitum þér takmarkað leyfi til að nota Þjónustu okkar samkvæmt þessum skilmálum.

5.2        Þér er óheimilt að lána, veðsetja, selja, ráðstafa eða veita öðrum aðgang Þjónustunni og hugverki Identi á nokkurn hátt nema með skriflegri heimild okkar.


6.           Lokun aðgangs

6.1        Við áskiljum okkur rétt til þess að grípa til hvaða aðgerða sem teljast nauðsynlegar til að bregðast við brotum gegn Þjónustusamningi þessum, þ.m.t. tafarlausrar lokunar á aðgangi þínum.

6.2        Við áskiljum okkur rétt til þess að loka einhliða aðgangi þínum (eftir atvikum að eyða aðgangi) að Þjónustu okkar hvenær sem er, og án fyrirvara. Þegar við metum aðstæður slíkar að grípa þurfi til slíkra aðgerða verður þér gert viðvart um þá ákvörðun og send tilkynning þess efnis á skráð netfang. Sem dæmi um slík tilfelli er t.d. ef notandi verður uppvís að misnotkun á þjónustu Identi eða ef þú hefur brotið í bága við eitthvert ákvæði þessa Þjónustusamnings.


7.           Breytingar og viðbætur

7.1        Við höfum heimild til að að breyta þessum Þjónustusamningi og bæta við hann hvenær sem er og taka slíkar breytingar gildi án fyrirvara.

7.2        Sé um að ræða breytingar á Þjónustusamningi þessum sem eru íþyngjandi fyrir þig munum við tilkynna þér slíkar breytingar með minnst þrjátíu (30) daga fyrirvara áður en breyting tekur gildi.

7.3        Áframhaldandi notkun á Þjónustu okkar jafngildir samþykki viðkomandi breytinga.


8.           Framsal

8.1      Þér er óheimilt að framselja réttindi sem byggir á þessum Þjónustusamningi án skriflegs samþykkis okkar. Okkur er heimilt að framselja, að hluta eða öllu leyti, réttindi okkar og skyldur samkvæmt. Þjónustusamningi þessum með tilkynningu þess efnis til þín.


9.           Lög, varnarþing & ágreiningur

9.1        Um Þjónustusamning þennan gilda íslensk lög. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða Þjónustusamningsins. 

9.2        Þú samþykkir að jafnvel þó svo að við nýtum okkur ekki einhver þau réttindi sín sem hljótast af þessum Þjónustusamningi að þá skuli ekki túlka það sem afsal þess réttar.

9.3        Sérhver ágreiningur sem ekki verður leystur með samkomulagi á milli aðila skal rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.