Skilmálar fyrir þátttöku og notkun á námskeiði
Með því að kaupa og/eða fá aðgang að námskeiði („Námskeiðið“) á vegum Áreiðanleiki ehf. („Identi“) samþykkir notandi að fylgja eftirfarandi skilmálum og skilyrðum:
1. Aðgangur að námskeiði
1.1 Aðgangur að Námskeiði er persónubundinn og er aðeins veittur þeim sem hefur keypt aðgang. Kaupandi getur keypt aðgang fyrir fleiri notendur, en heimild til aðgangs að Námskeiðinu er þá bundin við þá aðila sem aðgangur er keyptur fyrir og uppgefnir eru af hálfu kaupanda.
1.2 Hverjum notanda er eingöngu heimilt að skrá sig á Námskeiðið með því netfangi sem uppgefið var af kaupanda.
1.3 Aðgangur að Námskeiði er virkur í fimm (5) daga frá afhendingu lykilorðs að Námskeiði, nema annað sé tekið fram við kaup eða samið sérstaklega um lengri aðgang.
1.4 Identi áskilur sér rétt til að loka á aðgang notenda sem brjóta gegn ofangreindum skilmálum án endurgreiðslu.
1.5 Allt efni námskeiðsins, s.s. texti, myndir, grafík, hljóð, hreyfimyndir og myndbönd er varið af höfundarrétti og öðrum lögum sem vernda hugverk. Dreifing, breyting eða afritun á innihaldi þessa Námskeiðs er óheimil.
2. Óheimil notkun á aðgangsupplýsingum
2.1 Óheimilt er að dreifa notandanafni, lykilorði eða öðrum aðgangsupplýsingum til þriðja aðila.
2.2 Óheimilt er að deila vefslóð á Námskeiðið með þriðja aðila, hvort sem er gegn greiðslu eða án endurgjalds, nema viðkomandi hafi keypt marga aðgang að Námskeiði, en heimil miðlun er takmörkuð við þá aðila sem aðgangur var sérstaklega keyptur fyrir.
2.3 Allar tilraunir til að miðla, leigja út eða selja aðgang að Námskeiði til þriðja aðila eru með öllu óheimilar og munu leiða til tafarlausrar lokunar á aðgangi án endurgreiðslu.
3. Ábyrgð & skilmálabreytingar
3.1 Identi ber ekki ábyrgð á neinum skaða, tjóni eða vandamálum sem kunna að koma upp við notkun Námskeiðsins eða vegna misskilnings á efni þess.
3.2 Identi áskilur sér rétt til að uppfæra eða breyta Námskeiðinu án fyrirvara.
3.3 Identi áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum hvenær sem er. Breytingar taka gildi um leið og þær eru birtar á heimasíðu Identi eða tilkynntar með tölvupósti til notenda.

