Hlítni við lög á einfaldan, hagkvæman og fljótlegan máta með iDenti
iDenti var sett á laggirnar í þeim tilgangi að þjónusta lítil og meðalstór fyrirtæki í tengslum við að uppfylla lagaskyldur sínar í tengslum við varnir gegn peningaþvætti. Markmið okkar er að spara litlum og meðalstórum fyrirtækjum tíma og mannafla og jafnframt tryggja að þau uppfylli allar skyldur sínar samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
iDenti býður þessum aðilum heildstæða þjónustu í málaflokknum, á hagkvæman, áreiðanlegan og skjótan máta, svo að hlítni þeirra sé tryggð og þau geta einbeitt sér að því sem þau gera best, skapa verðmæti.
Yfir 100 viðskiptavinir
Yfir 1.000 áranleikakannanir
framkvæmdar í hverjum mánuði
Við erum stolt af okkar samstarfi við iDenti. Það hefur einkennst af mikilli fagmennsku, útsjónarsemi og vilja til að ná raunverulegum og mælanlegum árangri er varðar varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Lagaumhverfið heimur kallar á djúpa þekkingu og lausnir sem henta félaginu. Á því sviði hefur iDenti sannað sig og reynst traustur ráðgjafi.
Heildstæð þjónusta
iDenti býður upp á heildstæða lausn er viðkemur baráttunni gegn peningaþvætti og fjármögnun, hvort sem það er í formi hugbúnaðarlausnar til að einfalda hlítnikröfur eða ráðgjafar. Hér er yfirlit yfir það sem við bjóðum upp á. Listinn er þó ekki tæmandi, svo ekki hika við að hafa samband ef þú vilt fá að vita meira.
Við erum iDenti
iDenti er framsækið fyrirtæki sem byggir á reynslu tveggja lögfræðinga á regluverki Íslands um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Fyrirtækið var sett á laggirnar í þeim tilgangi að þjónusta lítil og meðalstór fyrirtæki í tengslum við þær lagaskyldur sem á þeim hvíla í tengslum við varnir þeirra gegn peningaþvætti.
iDenti býður þessum aðilum heildstæða þjónustu í málaflokknum, á hagkvæman, áreiðanlegan og skjótan máta, svo að hlítni þeirra sé tryggð og þau geta einbeitt sér að því sem þau gera best, skapa verðmæti.
Þórir Helgi Sigvaldason
Framkvæmdarstjóri
Þórir fer með framkvæmdastjórn iDenti. Þórir er lögmaður með víðtæka reynslu af ráðgjöf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og hefur meðal annars komið að ráðgjöf til félagasamtaka, fjártæknifyrirtækja og annarra fyrirtækja í málaflokknum. Þórir hefur ritað fræðigreinar um efnið og jafnframt haldið fyrirlestra og námskeið fyrir starfsmenn tilkynningarskyldra aðila.
Kristinn Svansson
Meðstofnandi
Kristinn Svansson er starfandi lögfræðingur og hefur í störfum sínum veitt ráðgjöf um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, hvoru tveggja sem ábyrgðarmaður peningaþvættis fjármálafyrirtækis sem og til fjölmargra fyrirtækja og félagasamtaka. Þá hefur Kristinn jafnframt veitt fjölmörgum fyrirtækjum ráðgjöf í málaflokknum.